Guðrún...Kata...Aldís
10.12.2006 00:16:41 / karun

Óvirkni

Ég er eiginlega hissa að ég skyldi muna lykilorðið hingað...

Þessi síða er semsagt ekki virk lengur, við erum núna partur af www.blog.central.is/-girlies Bara svona að láta ykkur vita

Katrín

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 18:52:19 / gudrun

bloggibloggiblogg....

heyrðu já, það er víst kominn  tími á að blogga eitthvað....;)
Já það var einhver frétt í útvarpinu um daginn um mann sem rann 200 metra niður brekku eða eitthvað fjall og síðan var sagt í fréttinni að engin meiriháttar meiðsl væru á manninum en hann kvartaði undan eymslum í baki, það er svona smá pæling hvort það væru ekki flestir sem myndu segja að sér væri dáldið illt í bakinu eftir að hafa runnið 200 metra niður grjót:$ ég sé það alla vega ekki fyrir mér vera neitt sérstaklega þægilegt:D;)
en síðan átti arna afmæli í gær, er bara orðin 16 ára, enginn smá lúxus að eiga afmæli svona snemma á árinu, hún fer í fyrsta ökutímann á morgun og sona;):D en ég fór allavega í afmæli til hennar í fyrradag og fékk að sleppa skólanum í gær. við horfðum á mr. og mrs. Smith og fórum síðan í 70 mín spilið. Og Arna greyjð þurfti 2 sinnum að drekka ógeðsdrykk, í seinna skiptið var hann alveg einstaklega ógeðslegur með sykri og matarolíu og einhverju þannig;):D

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 10:41:49 / karun

Bléeeeesaðar

Sælar, hvernig er skólinn? Kom ekki í skólann í gær og fer ekkert í dag, er veik heima ásamt 2 öðrum í minni fjölskyldu. Skemmtileg leið til að byrja önn.

Hef bara verið heima, aðallega að sofa og horfa á imbann og passa Hrafntinnu voffa...ég gaf litla bróður mínum 3.seríu af simpsons í jólagjöf þannig að það hefur skemmt okkur pínu. Sumt af þessum þáttum er snilld, Ingvar litl bróðir er að horfa á núna og það var í kynningunni þar sem Bart er að skrifa á töfluna: Funny noises are not funny....snilld

Katrín

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 19:45:51 / aldis

King Kong

þá eru jólin búin8|:evil: en ég fékk mikið í jólagjöf og fyndnasta var að afi gaf mér blandara svona mixara:$ég hélt að þetta væri djók hjá kallinum og opnaði kassann....:S...og í honum var 700 watta blandari:cry::S og hvað á ég að gera með eldhústæki?ég er bara enþá 15 ára.....en fór í bíó í gær og fyrradag og sá King Kong og Just Friend. Just Friends var algjör snilld og ég mæli með henni. en King Kong var hræðileg, hún var velgerð og allt það en fólkið á eyjunni var ógeðslegt:whut: mig langar nú ekki að sjá hana aftur....:S


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 20:40:59 / karun

Var að fá hund

Við vorum að fá hund! Labradortík, algjört krútt, heitir Tinna.

Hér er mynd:  www.blog.central.is/sigrunogbirna  síðan hjá systur minni

Katrín


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 14:50:50 / karun

Prófin eru búin

Hæhæ

PRÓFIN ERU BÚIN!!!

Loksins

Fór í skólann í dag, það var einhver dagskrá og svo föndur í stofu.....fín dagskrá niðri í grifju, tónlistaratriði og fleira.



» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 20:34:32 / gudrun

dúglegust í heimi;)

vá hvað ég er búin að vera dugleg;):D er búin að setja inn myndir frá Danmörku og klára Korku verkefnið og við Sóley kláruðum ritgerðina:D:!:;) en allavega þá eru myndirnar komnar frá DK... loksins;) ætla síðan að vera duglegri við að vera með myndavélina;):D Set kannski nokkrar af okkur 3 á eftir;):D en muna að skrifa í gestó!!!:D

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 00:59:37 / aldis

jólaskapið kemur smátt og smátt......;)

það er nú langt síðan ég bloggaði seinast:|:):S í sannleika sagt á hef ég hreinlega ekki nennt í tölvuna8|.....en allavega fór á Laugareginn í dag með Sunnu og Guðrúnu að skoða þessa heimsfrægu kókakóla lest:haha:, eða þessa fjóra jólaseríubíla maður komst í juleskab um leið og maður sá þá;):).....en samt snjórinn skemmdi allt:evil:.....það var enginn:evil:8|:!:og svo nottla var Miss World í dag og Ísland er fallegt í 3 skiptið...sem sannar það að íslenskar konur séu fallegastu konur í heimi....Unnur Birna stóð sig ógeðslega vel og vann, til hamingju með það....:lol:8););):):):D:D:D

svo eru prófin að byrja og maður er ekki að nenna að byrja að læra, en samt kvíðir samt rosalega fyrir stærðfræði.....:S:whut:

;)Aldís;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 21:33:43 / karun

HnéHné

Get nú tekið undir það að við erum mjög latar. Verðum greinilega að bæta okkur.....

Verð nú að segja svolítið um föstudaginn í síðustu viku. Eftir skóla fór ég með Sirrý í Smáralindina og ætlaði að skoða pils. Var búin að kaupa pils og skoða margt þegar við hittum Amber. Svo vorum við eitthvað að labba með Amber og vorum að fara undir rúllustigann þegar við sáum Audda á leiðinni niður. Amber sagði svona:"hæ Auddi" og þá kallaði Sirrý : "Hæ Auddi, ég elska þig" Svo labbaði hann aftur framhjá og Amber kallaði eitthvað og sagði að hún elskaði hann sko mjög mikið og þá knúsaði Auddi hana. Hún var í kasti þangað til að við fórum heim.

Svo fór ég á ball með Kúng Fú um kvöldið, vorum því miður bara ég og Sóley, allir hinir uppteknir eða félagsskítar. Það var ekkert sérstaklega skemmtilegt, ég hefði miklu frekar viljað hafa Pál Óskar sem DJ.

Prófin byrja í næstu viku.....ehinm...... Þau eru reyndar ekki nema 4 þannig að það er ekkert það slæmt....

Katrín

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 18:34:36 / gudrun

jaaaá... sumum er ekki ætlað að drekka pepsi

já í gær keypti ég mér semsagt pepsi fyrir dönsku, skrapp útí íþróttahús og keypti mér þessa blessuðu pepsi flösku á 140 kall. En þegar ég kom inní skóla vildi flaskan bara ekki vera í höndunum á mér. Ég byrjaði á að missa hana úr höndunum á mér þannig að hún datt í gólfið en þegar ég tók hana upp aftur slóst ég einhvern vegin í hana og hún rann úr höndunum á mér, skoppaði á borðið, niður á bekkinn og síðan niður á gólf og rúllaði síðan undir borðið og kom hinum megin út. Eftir að ég var sest við borðið held ég að hún hafi dottið sirkað 3 sinnum niðrá gólf:S:$;):D Það er kannski verið að reyna að segja manni eitthvað.

En já mér finnst stelpurnar bara ekkert vera að standa sig:!:;) Svo ég ákvað bara að skella inn þessu skemmtilega bloggi um pepsi:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 19:28:25 / gudrun

Mun þú mig, man ég þig, Unn þú mér, ann ég þér

jább.... þá er maður kominn í jólastuð;) var að finna til jóladiskana og sona:D:) það sem eyðileggur samt alveg jólin eru þessi helv$#%$ próf:evil:;) er að fara í próf á morgun og á fim og síðan skila 1 ritgerð og 1 verkefni á fös en síðan kemur 3ja daga helgi sem verður pottþétt notuð í eitthvað skemmtilegt eins og að skreyta eða kaupa jólagjafir;):D


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 17:36:08 / aldis

..úje....helgin komin......

jess loksins er komin föstudagur8):D:D:) ég er búin að bíða eftir helginni í viku......hehe:lol: en á morgun verður stuð;) ég, Guðrún, Sunna og Anna ætlum að gista saman og horfa á Danmerkurferðin:lol:.8)...Sunna var sko með svona vídjóupptökuvél.....svo æltum við líka örugglega í Singstar;);)....við ætlum að reyna að vinna í röddinni og hætta að vera svona falskar :lol:8| en já ég og Sunna fórum í bíó í dag og sáum helmingin af Harry Potter:p, við fórum sko út í hléinu því Sunna fattaði að hún átti að mæta á æfingu:P....þannig að við tókum strætó frá mjóddinni og heim :D. en ef þið farið í bíó í Danmerku og kaupið ykkur popp og pantið lítinn popp þá fáið popppoka sem er jafnstór og stærsti popppokinn hérna heima og sömuleðis kókið og svo er stór popp jafnstór og fata eða eitthvað:$:$.....mikilar pælingar en allavega þarf að fara ég þarf víst að fara að læra eitthvað heima....:frown: Aldís :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 16:33:24 / aldis

kitli ktil

Sunna kitlaði mig svo hérna kemur þetta;)

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

  • Klára grunnskóla
  • fara í Disneyland 
  • kaupa bíl og ná bílprófinu með stæl
  • fara í fallhlífastökk
  • fara til Afríku og fara á fílsbak
  • halda uppá afmælið mitt í höll
  • fá mér vespu

Sjö hlutir sem ég get:

  • labbað á sokkunum hringinn í kringum húsið mitt
  • talið uppá tíu
  • setið og horft á Freinds samfleitt í marga klukkutíma (ég og Guðrún gætum örugglega sett heimsmet í Freinds glápi)
  • bakað kanilsnúða án þess að eitthvað klikki
  • horft á sömu bíómyndina aftur og aftur
  • bakað brauð
  • reimað skóna mína

Sjö hlutir sem ég get ekki:

  • reiknað án þess að nota reiknivél
  • borðað eintómt suðusúkkulaði 
  • horft á Armageddon og Titanic án þess að fara að grenja
  • verið í Kirnglunni í meira en fjóra tíma
  • borðað þorramat
  • talað rússnesku
  • sagt veðrið án þess að segja verðið fyrst

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

  • hnakkalegt ljóst hár (gel og allar græjur)
  • fyndinn
  • brúnn en ekki of brúnn og heldur ekki snjóhvítur
  • svolítið ljóska
  • Ef hann er stærri en ég (ef hann væri mikið minni væri hann dvergur0
  • hefur gaman af fótbolta og grímyndum
  • góður húmor

Sjö staðir sem mig langar á:

  • Róm
  • London
  • til Ungverjalands að heimsækja pabba
  • Rúmið mitt
  • Til Guðrúnar
  • Bandaríkjanna 
  • Frakklands

Sjö orð eða setningar sem ég segi oft:

  • Shiiiiit
  • Nei
  • Fokkkk
  • Kúúl marr
  • Bömmer
  • Ohhh ... ég nenni þessu ekki
  • sökkar


Sjö hlutir sem ég sé einmitt núna:

  • prentara 
  • Drasl
  • tölvuskjáinn
  • lyklaborðið 
  • Tölvuna
  • músina
  • hátlara

hérna hafðið það....ég veit ekki hvern ég á að kitla...það eru allir búinir að þessu:whut:


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 16:13:19 / aldis

HP á morgun :S

þá eru gagn og gaman-dagarnir hálfnaðir,:S eða þ.e.a.s einn dagur eftir8|:| þetta er búið að vera ágætt, við erum búin að horfa á þrjár myndir allar svona ævintýra myndir sem ég er ekki alveg að fíla:S (fþetta eru svoma galdra og álfamyndir eins og Merlin, Legend og Snow-White:() svo inná milli vídjóglápsins þurfum við (ég og Sunna) að gera gagngrýni um myndina sem við vorum að horfa á........totally boring.....:whut::(

en eins og fyrirsögnin segir þá er ég að fara á frumsýningu á Harry Potter:$.....og ég er búin að sjá hana:^)......en plúsinn er að að ég þarf ekki að mæta fyrr en 1 á morgun....fæ að sofa út......:haha::haha:

en ég þarf að skjótast og taka kökurnar úr ofninum.:P....var að baka möffins jammí:P

over and out.......:haha:Aldís;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 18:25:23 / gudrun

naggachaggnaggachagga

JÁ... eins og Aldís sagði er ég í jólasmiðju sem þýðir að ég þarf að sitja á fokking rassinumí 4 tíma á dag og gera það sem ég hata mest......FÖNDRA:evil::evil::evil: Djísus kræst:evil: verð ábyggilega veik á morgun... ég er svo ekki að fara að gera þetta. En nóg um það ég er búin að vera ógeðslega dugleg og er búin að setja inn 20 myndir á www.picturetrail.com/eydis90 frá DK og er að setja 20 í viðbót:D;):!:

En í gær vorum við hjá Sunnu... ég Aldís og Sirrý... vorum í singstar og ég er víst best í Marilyn Manson:$:D;) en það var bara stuð:P síðan var ég að fara og labbaði út úr herberginu og fattaði þá að það heyrðist allt fram og mamma hennar sunnu og einhver kennari í Álftanesskóla voru víst búnar að vera að drepast úr hlátri yfir því hvað við vorum falskar8|:!:8| skil ekki hvaðan það kemur;):D


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3